er - Hausmynd

er

Ég var á leiknum og þetta íslenska lið er stórskemmtilegt!

Skömm frá því að segja að þetta var í fyrsta sinn sem ég fór á handboltaleik með landsliðinu ... og það í Madrid :)  Íslenska liðið átti gríðarlega skemmtilega spretti fannst mér en voru kannski full kurteisir í vörninni.  Kannski erfitt að vera ágengur þegar dómararnir eru að passa að spænska landsliðið tapi ekki fyrir framan næstu kynslóð handboltans á Madrid-svæðinu (tugum unglinga-handboltaliða var boðið á leikinnn).  Það er svo sem góðra gjalda vert, en þó ég hafi ekki mikið vit á handbolta þá sá ég að margir dómar þarna, sérstaklega varnarbrot Íslendinga, voru auðvitað djók :)

Skítt með tapið, þetta var stórskemmtilegur leikur, og íslenska liðið miklu líflegra.  Óli Stef er algert goð á svæðinu, það var fagnað í höllinni þegar hann skoraði (hann tók því reyndar rólega í þessum leik) og það þurfti öryggisverði til að bjarga honum inn í klefa eftir leikinn eftir áritanir og myndatökur.

Fjölskyldan er algerlega raddlaus í dag eftir átökin ... enda heyrðist mér að við við, Palli og Hörður og fjölskylda værum einu Íslendingarnir í húsinu :)

IMG_0124


mbl.is Vörnin er áhyggjuefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband