12.6.2007 | 15:54
Neytandi í neyð...
Af hverju er enginn (raunhæfur) vettvangur fyrir mig í þau fjöldamörgu skipti þegar ég tel að þjónustuaðilar svíni á mig ....or for that matter, þegar ég fæ sérstaklega góða þjónustu?
Fasteignaskrifstofa er að svína á mig þessa dagana, ráðleggingar þeirra síðustu 2 vikur hafa kostað mig beint a.m.k. 50þús kall og ekki er útséð um hvar sú upphæð endar. Afleiðingar ráðlegginganna voru fyrirséðar fyrir alla sem eru eldri en tvævetur í þessum bransa og augljóst fyrir mig núna, eftir að ég hef kynnt mér málin í þaula.
Á ég að ...
- ... taka á mig þennan kostnað þegjandi og hljóðalaust? Til viðbótar ca milljón sem stofan er búinn að fá í sölulaun fyrir þessar tvær íbúðir sem málið snýst um?
- ... vera beiski bloggarinn og gera allt vitlaust á blogginu?
- ... hringja í gamla félaga sem eru blaðamenn?
- ... hringja í gamla félaga sem eru lögfræðingar?
- ... vera ekkert, eins og allir aðrir!?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:58 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.