er - Hausmynd

er

Markaðsstjórinn hjá OpenHand nær að tengja símann sinn sem módem :)

Varð bara að besservissa aðeins þegar ég las þessa frétt ... ég notaði símann minn síðast í gær í sumarbústað sem módem yfir GPRS, og þurfti engan 3rd party hugbúnað til :)  Sé ekkert út úr heimasíðu OpenHand sem bendir til að þeir bjóði upp á e-a frekari þjöppun á gagnaflutningunum fyrir utan það sem hugsanlega tengist póstþjóna-extensionum fyrir Notes og Exchange .... hvað eru þeir að selja með þessari fréttatilkynningu?

Skemmtilegt annars þegar markaðsmennirnir eigna sér tækni sem kemur þeim í raun ekkert við.  Þetta minnir mig pínulítið á þegar Óli Daða seldi Lotus Notes (4.5 með póstclient dauðans :) ) sem Hugvitshugbúnað.  Snilldarsölumennska sem virkar og kemur stjórnendum inn í "comfort zone" af því þeir skilja ekki bofs hvað þeir eru að kaupa.   Það virkar samt ekki vel þegar það er ekki meira að gera hjá fyrirtæki á "póst" markaði að þeir hafi tíma til að skrifa svona "tómar" fréttatilkynningar sem vinir þeirra hjá mbl.is birta :)

 


mbl.is Auðvelt að tengjast netinu í sumarbústaðnum með OpenHand
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll og blessaður

Í OpenHand felst lausn sem býður notanda upp á nokkurs konar "thin client" í fartölvuna. Sé þessi client notaður er kostnaður vegna gagnamagns mun minni en ef póstur er skoðaður í gegnum vafrara. Þessi eiginleiki er viðbótarvirkni við þjónustu OpenHand fyrir farsíma. Í þeirri lausn felst tæmandi aðgangur að öllum upplýsingum sem liggja á póstþjóni án þess að þurfa að synka þær yfir á tækið. Það felur í sér mikinn sparnað í gagnamagni án þess að fórna aðgengi að upplýsingum.

Kostnaður við OpenHand (með gagnamagni) er um 2.000 krónur á mánuði. Dæmi síðan hver fyrir sig hversu mikil mjólkun það er.

Býð þér hér með í heimsókn í kaffi og spjall til að fá betri útskýringar á lausninni.

Vertu velkominn í Hafnarstræti 19

kv

Davíð

Davíð (IP-tala skráð) 24.7.2007 kl. 10:59

2 Smámynd: Ég

Takk fyrir útskýringuna Davíð ...  Fréttatilkynningin á mbl.is var bara fluff svo það býður upp á svona besserviss þegar maður hefur lesið of mikið af blöðru-tilkynningum.   Sé að það eru meiri upplýsingar í tilkynningunni sem þið settuð á heimasíðuna .... sammála 2000 spírur eru fljótar að borga sig upp ef þetta sparar gagnamagn að e-u ráði :)

Ég, 25.7.2007 kl. 08:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband