er - Hausmynd

er

Ég þoli ekki hyper-hressa sölumenn!

Rugludallar. Kafli 1. 

Ég þurfti í morgun að rífast við Remax fasteignasala út af ótrúlegu klúðri sem kostar mig  heilmikið vesen (en svo sem ekki heilmikla peninga ennþá 7-9-13...)   Ekki það að allt hafi verið honum einum að kenna en þvílíkt hvað ég þoli illa svona rugludalla sem hafa spilað goody-chitt-chatt-gæjann allt sitt líf, komist upp með það og haf "þetta-reddast celluna á sterum í hausnum á sér.  Heilsa kúnnum með "bleeezaður" og blikki.   Ég vill ekki að svoleiðis fólk komist nálægt fjármálunum mínum!

No-nonsense: Kafli 1

Hins vegar .... fór ég í Eico um daginn að kaupa loftnet.  Þar tók á móti mér no-nonsense sölumaður sem seldi mér nákvæmlega það sem ég þurfti.   Var ekki fúll yfir hvað ég vissi lítið um þessi mál (eins og ég hef lent í hjá annarri búð), heldur útskýrði bara málið og seldi mér (líklega :) ) bara nákvæmlega það sem ég þurfti og sleppti því hæfilega að vera hressi-gæinn.  Ég mun alltaf byrja rafmagnsvöruleit í Eico hér eftir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband